Sætan hér

18.12.2008 16:11:00 / sigrunm

Jólin koma

Jæja skólinn loksins búin og maður getur bara slappað af og sofið út. Ég er búin að fá nokkra jólapakka í hendurnar og hlakka svo til að sjá hvað er í þeim. Vinkona mín frá Noregi er búin að senda mér en ég ekki henni, skammast mín svolítið fyrir það. Á morgun eru jólagjafa innkaup hjá mér og ætla ég að kaupa mergjaðar gjafir. Það er jólaball hjá mér í skólanum í kvöld en kemst örugglega ekki því ég er að fara að spila á tónleikum og er svo að fara í jólaboð hjá frænku minni eftir á þar sem við bökum pizzu saman og horfum á jólamynd. Mér langar á ballið en nenni ekki þó svo ég myndi komast. Þetta eiga vera þrír skólar saman og salurinn er ponsulítill svo það verður mjög þröngt og það er ekki þægilegt. En það er komið að því að hætta í bili en læt vonandi heyra frá mér snemma, kii bæbæ.

» 13 hafa sagt sína skoðun

15.08.2008 15:16:12 / sigrunm

Heima er best

Kom heim fyrir svona tveim vikum síðan og var bara strax of buzy til að vera að blogga eikkað. Það var algjört æði á Landsmótinu enda alltaf eikkað að gera. Flokkurinn minn fór í vatnsbardaga með risa vatnsbyssum, vatnið var litað þannig að fötin okkar urðu strax fjólublá og við sjálf líka. Eftir bardagann fórum við í vatnasafaríið og eyðilögðum næstum flekann sem var þarna til að komast yfir á eikkera eyju en maður gat alveg vaðað því það var alls ekki djúpt. Þá fórum við og spurðum til hvers flekinn var og þá sögðu þau að hann væri þarna svo krakkar sem vildu ekki blotna gætu farið á eyjuna, þetta kallast vatnasafarí manni er ætlað að blotna í því. En jæja við fórum í Víkingaþorpið um kvöldið og fórum að elta hænur og gerðum okkur að algerum fíflum en við náðum allavega hænunum. Daginn sem mótið var sett kom Páll Óskar og var með alveg svakalegt ball fyrir okkur. Hann frumflutti fyrir okkur Sama hvar þú ert, nýjasta lagin hans. En núna verð ég að hætta blogga vonandi fljótt aftur og ámeðan ég man Njálli mér finnst það ekki óþægilegt. Kii bæbæ 

» 13 hafa sagt sína skoðun

30.06.2008 15:34:05 / sigrunm

Landsmót skáta

Landsmót skáta er í aðsigi og er allt á fullu hjá mér að gera tilbúið fyrir mótið. Eflaust vita fáir að ég sé skáti en ég er búin að vera skáti í langan tíma. Skátafélagið mitt Skjöldungar voru með útilegu um helgina í Hleiðru við Hafravatn til að undirbúa okkur fyrir mótið. Við krakkarnir sváfum í stóru tjaldi og allir þurftum að hjálpast að við að elda og vaska upp. Á laugardeginum gerðum við eldhúsborð úr trönum og súrruðum alveg sjálf saman. En núna er é að fara í Kringluna og verð því að hætta að blogga. Skrifa fljótt aftur: Sigrún María:d

» 14 hafa sagt sína skoðun

05.05.2008 14:56:23 / sigrunm

Hvadda

Jæja þá er ég enn og aftur byrjuð að blogga því ég hef ekkert annað að gera en það. Er að fara í bíó áeftir á myndina Made Of  Honor og ég hlakka ekkert smá til mar. Ég er að fara mmeð vinum mínum Rakel, Úlfi, Jóni og Sól. Það mun verða alveg brjálað og ef þið hafið séð myndina þá endilega segið mér frá því hvernig ykkur finnst myndin. Verð að hætta kii bæbæ.


» 13 hafa sagt sína skoðun

05.05.2008 11:46:20 / sigrunm

Hellú

Ég er búin að vera alveg rosalega upptekinn og svo var ég líka á Reykjum þannig ég hafði engan tíma til að blogga. Ætla bara að hafa þetta stutt og laggott þannig ég ætla að segja þetta búið í bili.
Kveðja Sigrún María:d


» 11 hafa sagt sína skoðun

25.03.2008 15:42:28 / sigrunm

Dugleg

Ætla bara að vera dugleg að blogga eins mikið og ég get svo það komi fleiri á síðuna því ég vil að hún verði vinsæl og að fólk haldi áfram að koma inná hana. Ég vaknaði eldsnemma í morgunn og fór með pabba mínum í vinnuna og hef bara verið á netinu síðan kl. 7:30 og fer bráðum að fara heim. Ég gerði ýmislegt í dag og það er svo mikið að ég nenni ekki að skrifa það allt. Heyri í ykkur seinna kii bæbæ.

» 12 hafa sagt sína skoðun

25.03.2008 08:20:41 / sigrunm

ÚÚPPSS

Það er búið að vera alveg brjálað að gera síðustu daga hjá mér þannig að ég hef ekkert komist til að blogga. Gleðilega páska þó þeir séu reyndar búnir en það skiptir ekki öllu máli. Vona að ég nái að blogga meira og endilega skrifið í gestó eða gerið bara coment. Sía kii bæbæ.

» 13 hafa sagt sína skoðun

06.03.2008 15:41:45 / sigrunm

Hæ og góðann daginn. Ég tók mér smá bloggfrí en nú er það búið og ég mun halda áfram að blogga eins og ég gerði. Þetta á bara að vera stutt og laggott svo ég ætla að segja að ég sé bara búinn í dag kii bæbæ

» 12 hafa sagt sína skoðun

24.02.2008 17:46:59 / sigrunm

LOL

Hæpp þið þarna. Ákvað að nýta tímann minn og blogga smá. Laugardagslögin voru algjör snilld en það var mjög leiðinlegt að Wiggle wiggle song var ekki í úrslitunum en ég hoppaði hæð mína af gleði þegar það kom í ljós að This Is My Life hefði unnið því ég hélt með því og kaus það að sjálfsögðu. Við Íslendingar ætlum okkur að vinna þetta í ár og ég er handviss um að Eurobandið geti unnið þetta fyrir okkar hönd. En nú ætla ég að blogga um það sem ég gerði í dag og hvernig dagurinn minn byrjaði. Ég vaknaði klukkan svona 9:00 og hlustaði á FM 957 eins og ég geri vanalega um helgar þegar ég vakna. Fór framm og kveikti á sjónvarpinu og horfði á það til svona 13:00 og fór þá að þvo mér og klæða mig og fá mér að borða auðvitað. Eftir það fór ég til ömmu minnar á Grund og Kjartan frændi minn var þar líka að heimsækja ömmu. Vanalega förum við öll fjölskyldan til ömmu en mamma var veik svo ég og pabbi fórum bara. Þegar við vorum að leggja af stað heim þá ákváðum við pabbi að kaupa eikkað fallegt handa mömmu þar sem það er nú einu sinni konudagur. Við keyptum fallegar rósir handa henni og súkkulaði með hnetum sem henni líkaði mjög vel og þá er bara komið að því sem ég er að gera einmitt núna, að blogga. Vonandi var dagurinn ykkar skemmtilegur því minn var alveg ágætur. Nú er komið að því að hætta, heyri í ykkur seinna. Bless í bili.

P.S. Skrifið endilega í gestó eða gerið comment. Vonandi heyri ég frá ykkur.


» 14 hafa sagt sína skoðun

23.02.2008 18:42:58 / sigrunm

Gleymdi mér

Hello þið þarna úti. Hef ekki mikin tíma til að blogga svo ég hef þetta bara stutt og laggott. Ég er bara búin að vera heima í allan dag og á netinu en gleymdi að fara fyrst á bloggið mitt. Var að horfa á simpsons á www.alluc.org sem er mjög fín síða til að finna allskonar þætti eða myndir. Nú verð ég víst að kverðja í bili, elska ykkur öll. Kii bæbæ

» 13 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 21:26:29 / sigrunm

What up dog

Enn einn dagurinn á enda en ég er samt ennþá hér að blogga og blogga. Einn bekkjarbróðir minn er svo mikill lúði, hann er að reyna eikkað og hann er að tala við mig einmitt núna. LÚÐINN.
Hann var að enda við að blokka mig á msn, algjör auli að mínu mati.But lets talk about somthing else. Var í klippingu í dag og Dagný sú sem klippir mig er algjör snillingur. Hún gerði geðveikt flott í hárið á mér en svo var ég að fara á æfingu þannig að það eyðilagðist allt:cry: Jæja verð að hætta þessu bloggi núna. Elska ykkur öll kii bæbæ


» 41 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 21:26:02 / sigrunm

Jójó

Ég er í stuði  með guði og mér líkar það. Nokkrir strákar í bekknum mínum ertu algerir fávitar og ég og vinkona mín erum svona aðains að pirra þá og vera leiðinlegar:klikk:, en það er allt í djóki:lol: (allavega hjá mér) :sHef ekki meiri tíma til að blogga en blogga meira á morgunn  Love ya all kii bæbæ;)

» 13 hafa sagt sína skoðun

17.02.2008 20:42:43 / sigrunm

Sorrý

Það var eikkað mikið að tölvunni minni svo ég komst ekki á blogcentral til að blogga sem er auðvitað mjög leiðinlegt. Jæja ég er búin að vera veik síðan á miðvikudaginn og missti af geðveikt góðum sinfóníutónleikum allavega svo sögðu vinir mínir. Vonandi heyri ég eikkað frá ykkur öllum og ég skila bara mínum bestu kveðjum og kveð í bili. Kii bæbæ:haha:

» 12 hafa sagt sína skoðun

09.02.2008 15:43:06 / sigrunm

Er í stuði

Ég er í stuði til að blogga og mun gera það bara núna og alltaf alla daga (eða reyna það;).
Það er ógeslega mikill snjór og ég er kominn með svo mikið leið á honum að mig langar til að æla eða eikkað soleiðis.:S
Fór út á öskudaginn til að sníkja nammi og ég fékk svona 2 kg og bíómiða á myndina Walk Hard.
Vinur minn fór á hana strax og sagði að hún hefði verið að geggað fun og að ég ætti að drífa mig á hana en ég er ekki ennþá búinn að fara.:lol:
Verð að fara hætta þessu þannig að ég heyri í ykkur seinna:haha:
Bæó Jón spæó 

» 14 hafa sagt sína skoðun

09.02.2008 15:32:38 / sigrunm

Hallú

Hallú allir sem eru að lesa þetta.
Þetta er fyrsta færslan mín á síðuna og ég vona að ykkur muni líka hún því allar hinar síðurnar mínar eru svo ömulegar.
Ég heiti Sigrún María og er 95 model (13 ára) og ég er á lausu eins og stendur.
Tala við ykkur seinna og msnið mitt er sigrunblue@hotmail.com ef þið viljið fá að vita meira um.
Kveð í bili;)Bæó

» 16 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  15  Alls: 6297
RSS tengill
Könnun
Þekkið þig mig